Hallóhalló!! Til hamingju Ísland!!!

Auðvitað tók Silvía Nótt
keppnina tremma í gegn og er á leiðinni til Aþenu!! Hún fær
allavega einhver atkvæði héðan frá Jersey þegar að því kemur!!

ég verð bara að taka það að mér fyrst þið getið það ekki!
Annars fannst mér flest lögin í þessari keppni voða týpísk
eitthvað.....allt of týpísk...þess vegna var valið rétt, núna
verðum við loksins smá öðruvísi!! Sýndi Colum lagið með Silvíu Nótt
og honum fannst það alls ekki slæmt og var alveg viss um að það
fengi ansi mörg atkvæði!
Komst loksins á rosarosa stelpudjamm á föstudaginn, fórum heim til
vinkonu Hönnu þar sem var hellingur af gellum að dressa sig og taka
sig til fyrir djammið saman, langt síðan maður hefur verið í
svoleiðis partýi! Fórum svo út að borða....í misjöfnu ástandi,
borðuðum á methraða því barirnir voru farin að bíða eftir okkur!

dönsuðum heilmikið og höfðum gaman!
Í gær fórum við Jóhanna svo í bæinn as usual en pöntuðum okkur samt
klippingu í þetta skiptið!!! Mjög gaman þegar við komum inn á Tony
& Guy þar virtust allir þekkja okkur, bara nei hæææ þið komnar
aftur!! og spjallað heilmikið!

Vinalegt fólk hérna ha!!
Laugardagskvöldið átti svo bara að fara í algjöra leti og sukkerí
en svo kom upp rosa neyðartilfelli svo að ég og Hanna enduðum á
rosalegu djammi!!

Hef ekki hlegið svo mikið út af engu
leeeeeengilengi!! veit ekki hvað var að sko....en rosalega gaman!
Gisti svo hjá Hönnu í Harry Potter rúmi (úhú!!) og svo fórum við í
kirkju snemma í morgun!! haha

hvað gerir maður ekki til að drepa
tímann hérna ha???
Rosalega var ég ánægð með Idolið á föstudaginn....var alveg ekki að
meika þessa Elvu......Held enn með Ínu en annars finnst mér Ingó
líka rosa góður! Þau í uppáhaldi!
Er komin með nýtt "barn" á heimilið.......fengum hvolp sem þýðir að
næstu vikurnar get ég ekki farið út úr húsi á morgnana!! Say
goodbye við bæjarferðir og fort regent! eins gott að veðrið er ekki
orðið það gott að ég þurfi að kveðja strand og parkferðinar!!

En
hún Lily er nú samt voða sæt lítil Westie Terrier, þarf bara soldið
mikla ögun (segir maður það???) fyrstu vikurnar og má helst ekki
skilja hana eftir eina...verð þá bara að sætta mig við það og vera
innipúki!!
Fer mjög líklega í sumarfrí í maí.....nokkrir staðir inní
myndinni...Spánn, Kýpur, Taíland (skrifar maður það svona
Tæland....hmm Thailand....aha!!) Það er nú aldeilis spennandi
ha.....ekki eins og ég fái nóg af sól hérna í sumar!! muhahahha!!
En held þetta sé komið gott......meira en gott.....
......tremma gott bara!!